top of page

Fræðsla og kennsla

Lífsiðja býður upp á fræðslu og kennslu fyrir fyrirtæki, skóla og leikskóla 

Að finna jafnvægi að loknum vinnudegi

Í þessu erindi er fjallað um hvernig skynáreiti í daglegu umhverfi geta haft áhrif á líðan, hegðun og orku. Markmiðið er að auka skilning á því hvernig taugakerfið vinnur úr áreitum og hvers vegna sumt umhverfi getur verið meira krefjandi en annað.

Fræðslan getur nýst öllum, en á sérstaklega vel við fólk sem starfar í opnum rýmum, leik- og skólaumhverfi eða öðrum áreitaríkum aðstæðum. Einnig þeim sem eru næmari fyrir umhverfi sínu eða styðja aðra sem eru það.

Í erindinu er lögð áhersla á að finna leiðir til að hlúa betur að sér, draga úr streitu og styðja við aukið jafnvægi og vellíðan í daglegu lífi svo við getum verið jafn virk að loknum vinnudegi.

Erindið er aðlagað að mismunandi aldurshópum og starfsstöðum, s.s. fyrir kennara á mismunandi skólastigum, fyrirtæki og starfshópa.

Rustic Coastal Pier

Taugaþroski og færni í daglegu lífi

Fræðsla um taugaþroska og færni í daglegu lífi hjálpar til við að varpa ljósi á hvernig taugakerfi, skynjun, athygli, sjálfstjórn og úrvinnsla upplýsinga hafa áhrif á þátttöku í daglegum aðstæðum.

 

Með auknum skilningi verður oft auðveldara að finna leiðir sem styðja við líðan, virkni og færni í heimili, skóla, vinnu og samfélagi.

Fræðsla og hópefli 

Lífsiðja býður upp á fræðslu og hópefli fyrir fyrirtæki og aðra hópa með áherslu á leiðir sem styðja við aukna ró í taugakerfi, betri tengsl og sterkari liðsheild. Fræðslan byggir á auknum skilningi á því hvernig álag, streita og samskipti hafa áhrif á líðan, samvinnu og virkni í daglegu starfi.

Í vinnunni er stuðst við leik, líkamsmiðaðar æfingar og verkefni sem byggja á reynslunámi, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að upplifa, ígrunda og læra saman. Þannig skapast rými fyrir aukið öryggi, samstillingu og traust innan hópsins, sem getur stutt við bætt samskipti, meiri samheldni og heilbrigðara samstarf.

Markmiðið er að þátttakendur fari með bæði dýpri skilning og hagnýtar leiðir sem nýtast til að efla vellíðan, styrkja liðsheild og skapa betra jafnvægi í sameiginlegu starfsumhverfi.

ATE group work.jpg

Lífsiðja

Tölvupóstur

Fylgdu okkur

Sundagarðar 2, 2.hæð 104 Reykjavík

  • Facebook
  • Instagram

©2020 by Lífs-Iðja.

bottom of page