Námskeið
og fræðsla
Lífsiðja býður einstaklingum, fagaðilum og fyrirtækjum upp á fjölbreytt námskeið og fræðsluerindi sem miða að því að efla leiðir til sjálfsþekkingar í lífi og starfi. Byggt er á hugmyndafræði iðjuvísinda, áfalla- og tengslakenningum, taugavísindum og reynslunámi þar sem áhersla er lögð á efla leiðir til sjálfsþekkingar og jafnvægis í daglegu lífi.
Hafðu samband og við skoðum saman hvort Lífiðja geti stutt þig eða þína.
Fræðsluerindi
Skólar, fyrirtæki, hópar
Lesa meira...
Áhersla á rót iðju vandans
Hjá Lífs-Iðju er lögð áhersla á að skoða rót þess iðjuvanda sem hefur áhrif á færni, virkni og þátttöku í daglegu lífi. Með góðri kortlagningu sem byggir á iðju, lífssögu og einstaklingsbundnum aðstæðum er unnið að því að skilja betur hvað hefur hamlandi áhrif og hvað getur stutt við breytingar. Í sameiningu eru fundnar leiðir sem henta hverju og einu taugakerfi, með það að markmiði að efla líðan, styrkja færni og auka þátttöku og lífsánægju.
Áfalla og tengslamiðuð iðjuþjálfun
Lífsiðja er meðferðarstofa sem opnaði árið 2020 og býður upp á iðjuþjálfun, ráðgjöf og samtalsmeðferð með áherslu á jafnvægi, virkni og vellíðan í daglegu lífi. Þjónustan getur farið fram á stofu, í heimahúsi, á vinnustað, í samfélaginu eða úti í náttúrunni í gegnum náttúrumeðferð.
Lögð er áhersla á að mæta hverjum einstaklingi af hlýju og fagmennsku og finna leiðir sem styðja við færni, þátttöku og betri líðan í daglegu lífi.
Ýmis stéttarfélög taka þátt í kostnaði við iðjuþjálfun og samstarf er við Virk endurhæfingu
Hafðu samband á harpayr@idja.is til að sjá hvort Lífsiðja geti aðstoðað þig eða þína.
Um mig:
Harpa Ýr Karínardóttir er iðjuþjálfi með yfir 20 ára reynslu af starfi með börnum, ungmennum og fullorðnum með fjölbreyttan sálfélagslegan vanda. Hún hefur sérhæft sig í áfalla- og tengslamiðaðri nálgun og leggur áherslu á að mæta hverjum einstaklingi af hlýju, öryggi og virðingu.
Harpa lauk BS-prófi í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2005 og MS-prófi í Organizational Behaviour and Talent Management frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012. Á starfsferli sínum hefur hún unnið með fólki á öllum aldri, auk þess að styðja foreldra, maka og aðra aðstandendur.
Í sinni vinnu leggur Harpa áherslu á að efla tengsl við líkamann, auka skilning á viðbrögðum taugakerfisins og finna hjálpleg bjargráð sem styðja við færni, þátttöku og jafnvægi í daglegu lífi. Hún vinnur meðal annars tengslaeflandi meðferð með börnum og foreldrum þeirra í gegnum leik, skynræna nálgun og aðferðir sem styðja öryggi og þroska. Jafnframt styður hún foreldra í að efla ró í eigin taugakerfi með fræðslu og líkamsmiðuðum æfingum, svo þeir séu betur í stakk búnir til að mæta þörfum barna sinna.
Harpa hefur einnig sérhæft sig í náttúrumeðferð og verið leiðandi í að kynna og þróa þá nálgun hér á landi. Hún er ein af stofnendum NÚM – Samtaka áhugafólks um náttúrumeðferð á Íslandi, Nordic Outdoor Therapy Network og Adventure Therapy Europe, og hefur setið í International Adventure Therapy Committee frá árinu 2016. Frá árinu 2022 hefur hún jafnframt sinnt stundakennslu við SLU um náttúrutengda íhlutun fyrir nema í umhverfissálfræði.
Í starfi sínu sameinar Harpa faglega þekkingu, víðtæka reynslu og djúpan skilning á samspili taugakerfis, líkamlegrar skynjunar, umhverfis og daglegrar iðju. Markmið hennar er að styðja fólk í að finna leiðir sem efla líðan, styrkja færni og auka möguleika til þátttöku og lífsánægju.
