Námskeið
og fræðsla
Lífsiðja býður einstaklingum, fagaðilum og fyrirtækjum upp á fjölbreytt námskeið og fræðsluerindi sem miða að því að efla leiðir til sjálfsþekkingar í lífi og starfi. Byggt er á hugmyndafræði iðjuvísinda, áfalla- og tengslakenningum, taugavísindum og reynslunámi þar sem áhersla er lögð á efla leiðir til sjálfsþekkingar og jafnvægis í daglegu lífi.
Hafðu samband og við skoðum saman hvort Lífiðja geti stutt þig eða þína.
Fræðsluerindi
Skólar, fyrirtæki, hópar
Lesa meira...
🌿 Náttúruhlédrag
______________

🌿 Flæði lífsins – Náttúruhlédrag
Um Haustjafndægur
24.-27. September 2026
Fjórir dagar í náttúrunni til að hægja á, endurnærast og endurtengjast því sem skiptir máli.
Á haustjafndægrum standa birtan og myrkrið til jafns.
Þessi tímamót bjóða okkur að staldra við og endurmeta hvernig
við viljum verja tíma okkar, orku og athygli á komandi mánuðum.
Líkt og náttúran leitar taugakerfið stöðugt að jafnvægi.
Þegar við höfum verið lengi í átaki getur líkaminn kallað eftir
hvíld.
Þegar við höfum verið lengi í dvala getur eitthvað í okkur kallað
eftir meiri lífskrafti.
Flæði lífsins er náttúruhlédrag fyrir konur sem vilja stíga út úr
hraða daglegs lífs og skapa rými til að hlusta á líkama sinn,
náttúruna og eigin innri takt.
🌿Fyrir hverjar er helgin?
Þessi helgi gæti verið fyrir þig ef þú:
-
finnur þörf fyrir að hægja á
-
vilt gefa sjálfri þér meira rými og næringu
-
ert á tímamótum í lífinu
-
vilt endurmeta hvað skiptir þig raunverulega máli
-
finnur að gömul mynstur eða venjur þjóna þér ekki lengur
-
þráir meiri tengingu við líkama þinn, náttúruna og sjálfa þig



_________________________________________
🌿 Flæði lífsins – Náttúruhlédrag
á sumarsólstöðum
25.-28.júní 2026
🌿Við munum kanna
-
Náttúrutengingu og náttúrumeðferð
-
Taugakerfið og innri jafnvægi
-
Hreyfingu og líkamsvitund
-
Kyrrð, ígrundun og dagbókarskrif
-
Hópefli og nærandi samveru
-
Jafnvægi milli hvíldar og lífskrafts
-
Hvað vill halda áfram að vaxa
-
Hverju er kominn tími til að sleppa
🌿Hvað getur þú fengið út úr helginni?
Tækifæri til að:
-
Hægja á og draga andann dýpra
-
Öðlast meiri skýrleika um næstu skref
-
Tengjast líkama þínum og eigin þörfum
-
Styrkja innri ró og seiglu
-
Endurhlaða orkuna
-
Ganga inn í haustið með meiri meðvitund og jafnvægi
🌿Umgjörðin
Fjórir dagar í fallegu umhverfi Samskara við Laugarvatn, þar sem náttúra, nærandi matur, hreyfing, ígrundun og samvera skapa rými fyrir hvíld og endurnýjun.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda til að tryggja hlýlegt og nærandi rými.
Verð frá 135.000-179.000 skráning HÉR
🌿Leiðbeinendur
Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir
Iðjuþjálfar, jógakennarar og sérfræðingar í náttúrumeðferð með áratuga reynslu af því að styðja einstaklinga í átt að auknum lífsgæðum, jafnvægi og tengingu við sjálfa sig.

Sumarsólstöður marka einstök tímamót í hringrás ársins.
Þetta er tími þegar birtan er mest, náttúran stendur í fullum blóma og lífið sjálft virðist minna okkur á vöxt, kraft og möguleikann á að opnast aftur.
Á sama tíma geta þessi tímamót boðið okkur að staldra við og spyrja:
🌿Hvar er ég stödd í mínu lífi?
🌿Hvað vill fá meiri birtu, næringu og rými?
🌿Hverju er ég tilbúin að sleppa til að geta lifað í meiri tengingu við sjálfa mig?
Margar konur upplifa á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni að þær hafi lengi haldið utan um svo margt — vinnu, heimili, fjölskyldu, samskipti, ábyrgð, breytingar, væntingar og þarfir annarra.
Kannski hefur þú verið sterk lengi.
Kannski hefur þú staðið þig í öllum hlutverkunum, þriðju vaktinni og haldið áfram, jafnvel þegar líkaminn hefur kallað eftir meiri hvíld.
Kannski finnur þú að eitthvað í lífinu vill breytast, en gömul mynstur halda áfram að toga þig til baka.
Eða kannski finnur þú einfaldlega þörf fyrir að hægja á, anda dýpra og gefa sjálfri þér rými.
Flæði lífsins-náttúruhlédrag á sumarsólstöðum er löng helgi fyrir konur sem vilja stíga út úr hraða daglegs lífs og endurtengjast líkama, náttúru, taugakerfi og eigin innri takti.
Þetta er rými fyrir konur á ólíkum æviskeiðum — konur sem eru að byggja sig upp, endurmeta, sleppa, endurnærast, leita jafnvægis eða finna nýja stefnu.
Þetta er ekki helgi til að laga sig.
Heldur rými til að tengjast og hlusta:
🌿 á líkamann
🌿 á náttúruna
🌿 á eigin þarfir og mörk
🌿 á það sem vill vaxa
🌿 á það sem þú vilt næra í þínu lífi

🌿 Um náttúruhlédragið:
Á þessu náttúruhlédragi gefum við líkama og taugakerfi rými til að róast, mýkjast og endurstilla sig.
Í gegnum náttúrumeðferð, líkamsmiðaðar æfingar, mjúka hreyfingu, ígrundun, fræðslu, samveru og helgisiði sumarsólstaðanna skoðum við bæði það sem við viljum færa inn í líf okkar og þau meðvituðu og ómeðvituðu mynstur sem geta staðið í vegi fyrir því.
Við vinnum með náttúruna sem spegil og stuðning.
Sumarsólstöðurnar verða leiðarstef fyrir helgina — tími birtu, vaxtar, skýrleika og endurnýjaðs lífskrafts.
Við styðjum líkamann til að losa um spennu, dýpka öndunina og finna aftur náttúrulegt flæði, mýkt og lífsgleði.
Þegar líkaminn fær rými til að hægja á getur opnast aftur fyrir:
• meiri ró
• sköpunarkraft
• dýpri öndun
• aukna líkamsvitund
• skýrari tengingu við eigin þarfir
• mýkt, lífsgleði og innri styrk
• betri tilfinningu fyrir því hvað skiptir raunverulega máli
🌿 Við vinnum meðal annars með:
• náttúrutengingu og náttúrumeðferð
• tengingu við líkama, skynjun og innri takt
• fræðslu um taugakerfið, streitu og bjargráð út frá taugavísindum og iðjuþjálfafræðum
• æfingar sem róa og styrkja taugakerfið
• jóga og mjúka hreyfingu
• hugleiðslu og jóga nidra
• tónheilun
• göngur, ígrundun og nærandi samveru í náttúrunni
• helgisiði tengda orku sumarsólstaðanna
• rými til að skoða hvað þú vilt næra, sleppa og bjóða inn
🌿 Fyrir hverja er þetta?
Þetta náttúruhlédrag er fyrir konur sem þrá að hægja á og tengjast sjálfum sér á dýpri hátt.
Það getur hentað þér ef þú:
• finnur fyrir langvarandi streitu eða innri þreytu
• hefur verið mikið í ábyrgð, umönnun eða framkvæmd
• vilt endurtengjast líkamanum og innsæinu
• ert á tímamótum eða í breytingaferli
• finnur að gömul mynstur eru farin að þrengja að þér
• þráir meiri ró, skýrleika og lífskraft
• vilt gefa þér rými til að hlusta á hvað næsti kafli lífsins kallar á
🌿 Hvað tekur þú með þér heim?
Markmið helgarinnar er að þú farir heim með:
• meiri ró í líkamanum
• sterkari tengingu við sjálfa þig
• aukna líkamsvitund og næmni fyrir eigin þörfum
• dýpri skilning á mynstrum sem hafa áhrif á líf þitt
• endurnýjaðan lífskraft
• meiri skýrleika um það sem þú vilt næra og skapa
• verkfæri og reynslu sem styðja við jafnvægi í daglegu lífi
🌿 Leiðbeinendur:
Náttúruhlédragið er leitt af Öldu Pálsdóttur (aldapals.com) og Hörpu Ýr Karínardóttur (idja.is), áfalla- og tengslamiðuðum iðjuþjálfum, jógakennurum og sérfræðingum í náttúrumeðferð.
Þær hafa áratuga reynslu af því að vinna með líkama, taugakerfi, tengsl, streitu og daglegt jafnvægi einstaklinga með það að markmiði að styðja við aukin lífsgæði, innri ró og sjálfbærari þátttöku í lífinu.
🌿 Hagnýtar upplýsingar:
Ef þú finnur að þetta kallar á þig getur þú sótt um HÉR.
Við förum yfir umsóknir og höfum samband. Plássin eru fá til að halda rýminu rólegu, persónulegu og nærandi.
Hlédragið verður haldið í Samskara á suðurlandi.
Verð frá 135 -179 þús kr.
Hafðu samband á alda@aldapals.com eða harpayr@idja.is til að fá nánari upplýsingar um verð og dagskrá

