Námskeið
og fræðsla
Lífsiðja býður einstaklingum, fagaðilum og fyrirtækjum upp á fjölbreytt námskeið og fræðsluerindi sem miða að því að efla leiðir til sjálfsþekkingar í lífi og starfi. Byggt er á hugmyndafræði iðjuvísinda, áfalla- og tengslakenningum, taugavísindum og reynslunámi þar sem áhersla er lögð á efla leiðir til sjálfsþekkingar og jafnvægis í daglegu lífi.
Hafðu samband og við skoðum saman hvort Lífiðja geti stutt þig eða þína.
Fræðsluerindi
Skólar, fyrirtæki, hópar
Lesa meira...
SSP-Hljóðmeðferð
Safe and Sound Protocol
Hvað er SSP-hljóðmeðferð ?
Safe and Sound Protocol (SSP) er gagnreynd meðferð sem byggir á hátt í fjögurra áratuga rannsóknum á samspili milli ósjálfráða taugakerfisins og félags- og tilfinningalegra ferla (social-emotional processes).
SSP meðferðin felur í sér að hlusta á tónlist sem hefur verið sérstaklega meðhöndluð til að endurstilla ósjálfráða taugakerfið. Með því að þjálfa heyrn kerfisbundið eins og gert er með SSP verður til ný grunnstaða (base position) í taugakerfinu sem eflir öryggis tilfinningu einstaklingsins og hæfni hans til að vera í samskiptum.
Ef einstaklingur upplifir öryggi og er í betra jafnvægi er auðveldara að takast á við óþægileg mál og nálgast tilfinningar sem áður hefur þurft að forðast. Þetta er sérstaklega hjálplegt fyrir einstaklinga í áfallameðferð. Því getur verið ákjósanlegt að fara í gegnum SSP meðferð samhliða eða í byrjun t.d. áfallameðferðar og meðferðar við annars konar vanda, þar sem SSP styður við aðra meðferð og getur aukið árangur.


Fyrir hverja nýtist SSP og hver er árangurinn?
SSP hefur reynst gagnleg einstaklingum með áfallasögu, kvíða, streitutengdan vanda, skynúrvinnsluvanda, s.s. aukna hljóðnæmni og fleira. Meðferðin hentar bæði fyrir börn og fullorðna.
Eftir meðferðina eiga einstaklingar betra með að einbeita sér í verkefnum daglegs lífs og upplifa rólegra innra ástand, bæði lífeðlisfræðilega og tilfinningalega. Rannsóknir benda til að færni eins og athygli, tilfinningastjórn og félagsleg samskipti eflist.
SSP- hljóðmeðferð í hópi
SSP hljóðmeðferð getur einnig farið fram í littlum hópum þar sem áherslan er lögð á að læra í sameiningu líkamsmiðaðar æfingar sem stuðla að aukinni ró í taugakerfi.
Þátttakendur velja sér einfalda iðju á meðan hlustað er sem styður við að halda virknistigi í ró og öryggi.
Námskeiðin standa yfir í 6 vikur þar sem hlustað er bæði í hóp og einnig heima á milli tíma og verða auglýst hér á síðunni. Einnig geta hópar og vinnustaðir óskað eftir hljóðmeðferð með það að leiðarljósi að efla ró og þolmörk fyrir streitu sem getur skilað sér í bættri líðan hópa.
