top of page

🌿 Náttúruhlédrag
______________

 

Flæði- Heim í ræturnar-hlédrag banner.png

🌿 Flæði- Heim í ræturnar:
 
Náttúrumeðferðar hlédrag 

Um Haustjafndægur
24.-27. September 2026

Fjórir dagar í náttúrunni til að hægja á, endurnærast og endurtengjast því sem skiptir máli.

 

Haustjafndægur eru tímamót:
Dagur og nótt mætast í jafnvægi og náttúran er á leið inn í hægari

takt. Laufin byrja að falla, uppskeran er tekin inn og eitthvað í

okkur fær leyfi til að hægja á.
Okkur langar að bjóða þér að staldra við með okkur á þessum

tímamótum, leggja við hlustir og velja hvaða líf þú vilt skapa þér

inn í veturinn.

Þetta verður rauði þráðurinn í gegnum helgina.
🌿Við skoðum hvað nærir okkur og gefur okkur lífskraft.

🌿Hvað við þráum.

🌿Hvað stendur í vegi.

🌿Hvaða mynstur eru að endurtaka sig.

🌿Hvað er tilbúið að gefa eftir og hverju viljum við gefa meiri

         næringu.


Náttúran verður ekki bara bakgrunnur heldur virkur hluti af

ferlinu. Við hægjum á okkur, förum út, hreyfum okkur, hlustum,

leikum, skynjum og leyfum umhverfinu að hreyfa við okkur.
Það er eitthvað magnað sem gerist þegar konur koma saman og

því höfum við fengið til liðs við okkur nokkrar konur sem koma

með ólíkar gjafir og meðferðarbakgrunn til að kynnast okkur

sjálfum betur.

   

Flæði- gróðurh.jpg

Dagskrá hlédragsins inniheldur:
🌿Náttúran sem kennari
Alda og Harpa Ýr vinna með stuðningi náttúru til að staldra við, skynja og tengjast okkur á nýjan hátt. Þær tengja líkamann sem leiðarvísir gegnum hreyfingu, leik, dans, söng og fleiri líkamsmiðaðar leiðir til að hlusta og tengjast.

 🌿Sögur, partar og erketýpur
Harpa Katrín, sálfræðingur, vinnur með parta, erketýpur og sögur og mun leiða okkur inn í skapandi vinnu með okkar eigin frásagnir.

 🌿Kvenlíkaminn og hormónakerfið
Hanna Lilja, kvennheilsu læknir, mun fjalla um hormónakerfið og hvernig aukin þekking á líkamanum getur hjálpað okkur að skilja okkur sjálfar betur.

🌿Nálastungur og frumkraftarnir fimm
Ágústa, hjúkrunarfræðingur og nálastungufræðingur, mun veita innsýn frumkraftana fimm og hugleiðslu.

 🌿Innsæi og talnafræði
Tinna, markþjálfi og hómópati, mun bjóða okkur inn í heim talnaspeki og innsæis og veita okkur leiðir og leiðir til sjálfsþekkingar í gegnum spegil erkitýpa.

🌿Einstaklingstímar
Þátttakendum býðst tækifæri að bóka einn einstaklingstíma á meðan hlédraginu stendur í: nálastungum, partavinnu, orkuvinnu, talnaspeki og tarot, líffæranuddi eða Omni meðferð.

Flæði - 4konur .png
Flæði-reykur yfir samskara.jpg

🌿Harpa og Alda halda

utan um heildina:

Þær eru áfalla- og tengslamiðaðir iðjuþjálfar, jógakennarar og sérfræðingar í náttúrumeðferð. Þær hafa áratuga reynslu af því að vinna með líkama, taugakerfi, tengsl, streitu og daglegt jafnvægi einstaklinga með það að markmiði að styðja við aukin lífsgæði, innri ró og að lifa innihaldsríku lífi.
Þær halda utan um rauða þráð helgarinnar og flétta saman ólíkar meðferðarnálganir í heilsteypta upplifun og áframhaldandi næringu inn í veturinn.

🌿Umgjörðin:

Mæting er kl 16:00 fimmtudaginn 24. septermber og dagskrá hefst kl 17:00 sama dag. Dagskrá lýkur klukkan 14:00 sunnudaginn 27. september.

Fjórir dagar í fallegu umhverfi Samskara við Laugarás, þar sem náttúra, nærandi matur, hreyfing, ígrundun og samvera skapa rými fyrir hvíld og endurheimt.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda til að tryggja hlýlegt og nærandi rými.

Verð 145.000 skráning HÉR

 

 

Flæði-Alda og Harpa í Samsk.jpg

_________________________________________
Lokið:
🌿 Flæði lífsins – Náttúruhlédrag

á sumarsólstöðum
25.-28.júní 2026

Sumarsólstöður marka einstök tímamót í hringrás ársins.
Þetta er tími þegar birtan er mest, náttúran stendur í fullum blóma og lífið sjálft virðist minna okkur á vöxt, kraft og möguleikann á að opnast aftur.

Á sama tíma geta þessi tímamót boðið okkur að staldra við og spyrja:

🌿Hvar er ég stödd í mínu lífi?
🌿Hvað vill fá meiri birtu, næringu og rými?
🌿Hverju er ég tilbúin að sleppa til að geta lifað í meiri tengingu við sjálfa mig?

Margar konur upplifa á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni að þær hafi lengi haldið utan um svo margt — vinnu, heimili, fjölskyldu, samskipti, ábyrgð, breytingar, væntingar og þarfir annarra.

Kannski hefur þú verið sterk lengi.
Kannski hefur þú staðið þig í öllum hlutverkunum, þriðju vaktinni og haldið áfram, jafnvel þegar líkaminn hefur kallað eftir meiri hvíld.


Kannski finnur þú að eitthvað í lífinu vill breytast, en gömul mynstur halda áfram að toga þig til baka.
Eða kannski finnur þú einfaldlega þörf fyrir að hægja á, anda dýpra og gefa sjálfri þér rými.

Flæði lífsins-náttúruhlédrag á sumarsólstöðum er löng helgi fyrir konur sem vilja stíga út úr hraða daglegs lífs og endurtengjast líkama, náttúru, taugakerfi og eigin innri takti.

Þetta er rými fyrir konur á ólíkum æviskeiðum — konur sem eru að byggja sig upp, endurmeta, sleppa, endurnærast, leita jafnvægis eða finna nýja stefnu.

Þetta er ekki helgi til að laga sig.


Heldur rými til að tengjast og hlusta:

🌿 á líkamann
🌿 á náttúruna
🌿 á eigin þarfir og mörk
🌿 á það sem vill vaxa
🌿 á það sem þú vilt næra í þínu lífi

🌿 Um náttúruhlédragið:

Á þessu náttúruhlédragi gefum við líkama og taugakerfi rými til að róast, mýkjast og endurstilla sig.

Í gegnum náttúrumeðferð, líkamsmiðaðar æfingar, mjúka hreyfingu, ígrundun, fræðslu, samveru og helgisiði sumarsólstaðanna skoðum við bæði það sem við viljum færa inn í líf okkar og þau meðvituðu og ómeðvituðu mynstur sem geta staðið í vegi fyrir því.

Við vinnum með náttúruna sem spegil og stuðning.
Sumarsólstöðurnar verða leiðarstef fyrir helgina — tími birtu, vaxtar, skýrleika og endurnýjaðs lífskrafts.

Við styðjum líkamann til að losa um spennu, dýpka öndunina og finna aftur náttúrulegt flæði, mýkt og lífsgleði.

Þegar líkaminn fær rými til að hægja á getur opnast aftur fyrir:

• meiri ró
• sköpunarkraft
• dýpri öndun
• aukna líkamsvitund
• skýrari tengingu við eigin þarfir
• mýkt, lífsgleði og innri styrk
• betri tilfinningu fyrir því hvað skiptir raunverulega máli

 

🌿 Við vinnum meðal annars með:

• náttúrutengingu og náttúrumeðferð
• tengingu við líkama, skynjun og innri takt
• fræðslu um taugakerfið, streitu og bjargráð út frá taugavísindum og iðjuþjálfafræðum
• æfingar sem róa og styrkja taugakerfið
• jóga og mjúka hreyfingu
• hugleiðslu og jóga nidra
• tónheilun
• göngur, ígrundun og nærandi samveru í náttúrunni
• helgisiði tengda orku sumarsólstaðanna
• rými til að skoða hvað þú vilt næra, sleppa og bjóða inn

 

🌿 Fyrir hverja er þetta?

Þetta náttúruhlédrag er fyrir konur sem þrá að hægja á og tengjast sjálfum sér á dýpri hátt.

Það getur hentað þér ef þú:

• finnur fyrir langvarandi streitu eða innri þreytu
• hefur verið mikið í ábyrgð, umönnun eða framkvæmd
• vilt endurtengjast líkamanum og innsæinu
• ert á tímamótum eða í breytingaferli
• finnur að gömul mynstur eru farin að þrengja að þér
• þráir meiri ró, skýrleika og lífskraft
• vilt gefa þér rými til að hlusta á hvað næsti kafli lífsins kallar á

 

🌿 Hvað tekur þú með þér heim?

Markmið helgarinnar er að þú farir heim með:

• meiri ró í líkamanum
• sterkari tengingu við sjálfa þig
• aukna líkamsvitund og næmni fyrir eigin þörfum
• dýpri skilning á mynstrum sem hafa áhrif á líf þitt
• endurnýjaðan lífskraft
• meiri skýrleika um það sem þú vilt næra og skapa
• verkfæri og reynslu sem styðja við jafnvægi í daglegu lífi

 

🌿 Leiðbeinendur:

Náttúruhlédragið er leitt af Öldu Pálsdóttur (aldapals.com) og Hörpu Ýr Karínardóttur (idja.is), áfalla- og tengslamiðuðum iðjuþjálfum, jógakennurum og sérfræðingum í náttúrumeðferð.

Þær hafa áratuga reynslu af því að vinna með líkama, taugakerfi, tengsl, streitu og daglegt jafnvægi einstaklinga með það að markmiði að styðja við aukin lífsgæði, innri ró og sjálfbærari þátttöku í lífinu.

🌿 Hagnýtar upplýsingar:

 

Ef þú finnur að þetta kallar á þig getur þú sótt um HÉR.

 

Við förum yfir umsóknir og höfum samband. Plássin eru fá til að halda rýminu rólegu, persónulegu og nærandi.

 

Hlédragið verður haldið í Samskara á suðurlandi.
Verð frá 135 -179 þús kr. 

 

Hafðu samband á alda@aldapals.com eða harpayr@idja.is til að fá nánari upplýsingar um verð og dagskrá

Hengirúm.jpg
20160415_162419.jpg

Lífsiðja

Tölvupóstur

Fylgdu okkur

Sundagarðar 2, 2.hæð 104 Reykjavík

  • Facebook
  • Instagram

©2020 by Lífsiðja.

bottom of page